Fara yfir á efnisvæði

IKEA innkallar PATRULL öryggishlið

24.06.2016

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Ikea vegna innköllunar á öryggishliði. IKEA hafa borist tilkynningar um hlið sem opnuðust við álag þannig að börn hafi dottið niður stiga og hlotið væg meiðsl. Ekki hafa borist tilkynningar hér á landi. Rannsókn þriðja aðila leiddi í ljós að búnaðurinn sem á að læsa hliðinu sé ekki nógu áreiðanlegur, þrátt fyrir að uppfylla tilheyrandi staðla. IKEA gefur engan afslátt hvað öryggi barna varðar og hvetur alla viðskiptavini sem eiga PATRULL öryggishlið til að koma með það í verslunina og fá endurgreitt.

PATRULL öryggishlið, PATRULL KLÄMMA og PATRULL FAST hafa verið seld á öllum markaðssvæðum IKEA. Ekki þarf að sýna greiðslukvittun til að fá endurgreitt. Nánari upplýsingar má finna á www.IKEA.is og í þjónustuveri IKEA í síma 520 2500.

TIL BAKA