Fara yfir á efnisvæði

BL ehf. innkallar Renault bifreiðar

09.12.2016

Lógó BLNeytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf. varðandi innköllun á 101 Renault bifreiðum af gerðinni Trafic III, framleiðsluár 2014-2016. Í gæðaeftirliti Renault hefur komið ljós að athuga þarf herslu á boltum í fjöðrunarbita að aftan. Afleiðingar sem geta komið fram er óhljóð frá afturfjöðrun, óeðlilegt dekkjaslit að innanverðu að aftan sem mun að lokum minnka veggrip bifreiðar.

Haft verður samband við eigendur viðkomandi bifreiða með pósti.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við BL ehf. ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA