Fara yfir á efnisvæði

Markaðssetning á Dælunni og sumarleik N1

23.01.2017

Neytendastofu barst erindi Skeljungs hf. þar sem kvartað var yfir markaðssetningu N1 hf. á Dælunni og sumarleik N1 2016. Skeljungur taldi að slagorð Dælunnar „þrír fyrir einn á eldsneyti“ og „megahraðboðstilrýmingarsérverð“ væru villandi gagnvart neytendum. Þá taldi Skeljungur að slagorðið: „Viltu ferðast frítt með fjölskylduna í sumar? Fimm sigurvegarar munu hljóta 60.000 kr. í formi N1 punkta, þ.e. andvirði meðaleyðslu venjulegs fólksbíls í 3 mánuði“ í sumarleik N1 væri einnig villandi gagnvart neytendum. N1 hefði ekki fært sönnur á að tilgreint andvirði meðaleyðslu venjulegs fólksbíls væri rétt og tenging punkta við krónur væri villandi.

Neytendastofa taldi ekki villandi að tilgreina verðmæti N1 punkta í krónum þar sem hver punktur samsvar ávallt einni krónu í punktakerfi N1. Einnig taldi stofnunin að rekstrarkostnaður fólksbíla hjá N1 væri í samræmi við reksturskostnaðartöflu félags íslenskra bifreiðaeigenda. Neytendastofa taldi hins vegar að slagorð markaðssetningar Dælunnar „þrír fyrir einn á eldsneyti“ og „megahraðboðstilrýmingarsérverð“ væru sett fram með villandi hætti um það verðhagræði sem í boði væri. Þá taldi Neytendastofa einnig að kynning á verðstefnu Dælunnar sem nýjung á Íslandi væri villandi.

Neytendastofa bannaði N1 að birta fullyrðingarnar

TIL BAKA