Fara yfir á efnisvæði

Bílaumboðið Askja innkallar Mercedes Benz bifreiðar

22.06.2017

lógó bílaumboðið AskjaNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf um innköllun á 6 bifreiðum af gerðinni Mercedes Benz E-Class. Ástæða innköllunarinnar er sú að á E-class bifreiðum sem koma með taxi merki frá framleiðanda er möguleiki á því að líming í merki losni.

Askja ehf hefur nú þegar haft samband við viðeigandi bifreiðaeigendur.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við Bílaumboðið Öskju ehf ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA