Fara yfir á efnisvæði

Vigtarmannanámskeið

26.10.2017

Námskeið til löggildingar vigtarmanna var haldið 9. – 11 október. Í húsakynnum Neytendastofu í Reykjavík sátu 13 þátttakendur námskeiðið en samtímis sátu 11 þátttakendur í Vestmannaeyjum námskeiðið með aðstoð fjarfundarbúnaðar.
Endurmenntunarnámskeið vigtarmanna var haldið þann 12. október. Löggilding vigtarmanna gildir í 10 ár og þarf að sitja endurmenntunarnámskeið til að framlengja réttindin. Að þessu sinni sátu 13 vigtarmenn endurmenntunarnámskeiðið þar af einn á Bakkafirði með aðstoð fjarfundabúnaðarins.

Farið er yfir lög nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn og reglur og reglugerðir sem byggðar eru á þeim lögum og snúa að starfi vigtarmanna. Áhersla er einnig lögð á lög og reglugerðir um efni sem tengist vigtun sjávarafla. Leiðbeinendur koma frá Neytendastofu og Fiskistofu. Námskeiðið var haldið í húsnæði Neytendastofu í Borgartúni 21.

Grunnámskeið hafa verið haldin þrisvar á ári og verður næsta löggildingarnámskeið haldið í janúar 2018. Boðið er upp á endurmenntunarnámskeið eftir þörfum og þá oftast í framhaldi af grunnnámskeiðinu.

Á heimasíðu stofnunarinnar er hægt að fá upplýsingar um inntökuskilyrði á námskeiðin og fleira er þeim tengist eins og tímasetningar næsta námskeiðs og þar er einnig hægt að innrita sig á námskeið. Þar má líka finna og hala niður hluta af námsefninu sem farið er yfir.

TIL BAKA