Fara yfir á efnisvæði

Neytendastofa skoðar Snuð

16.11.2017

FréttamyndNeytendastofa hefur síðustu árin lagt mikla áherslu á að skoða vörur ætlaðar börnum. Í kjölfar þessara skoðana hefur komið í ljós að hérlendis hafa verið til sölu vörur sem hafa ekki verið í lagi, og jafnvel hættulegar börnum. Í samstarfi við eftirlitsstjórnvöld á Evrópska efnahagssvæðinu voru nú síðast skoðuð snuð og snuðbönd.

Skoðuð voru yfir 900 snuð af 74 tegundum. Kom í ljós að 27% af snuðunum voru ekki allar merkingar í lagi. Það sem vakti sérstaka athygli í þessari könnun var að það skyldu vera á markaðnum snuð sem væru bókstarflega hættuleg fyrir börn en þau hafa nú verið innkölluð og tekin af sölu. Um var að ræða silicon snuð frá framleiðendunum Camera og Cangaroo. Einnig hafa verið tekin af markaði snuð frá Lovi, BabyOno og frá NOVILAB snuð sem heita Marine. Allar þessar tegundir af snuðum eru það er Neytendastofa best veit ekki seldar á Íslandi.

Það þarf einnig að hafa í huga að flest slys út af snuðum gerast út af rangri notkun.

Mikilvægt er að kaupa snuð sem hæfir aldri barnsins. Tútturnar eru misjafnar og þá er verið að taka til greina meðal annars bitkraft tannanna í börnum. Passa þarf að sjóða snuðið áður en það er notað í fyrsta skipti og þrýsta vel vatninu úr túttunni ef það á við. Í hvert sinn sem á að nota snuð á að toga í túttuna til að vera viss um að hún sé í lagi og ef það eru komin bitför þá á að henda því strax.

Það má ekki geyma snuð í lengri tíma við sólarljós. Ef snuð er geymt í einhvern tíma við glugga, á mælaborðinu í bílnum eða í verslunarstandi þar sem birta kemst að eyðileggjast snuðin og verða hættuleg fyrir börn þar sem túttan fer í sundur.

Neytendastofa hefur þegar birt frétt út af snuðunum sem pöntuð eru á vefsíðu með nafni barnsins en það hafa komið fjölda athugasemda þar sem tútturnar hafa losnað og jafnvel staðið í börnum en það er að öllum líkindum vegna þess að snuðin eru notuð of lengi. Það á ekki að nota snuð lengur en í 1-2 mánuði.

Snuð voru skoðuð frá; AVENT (Philips), Baby Elegance, Babylove, BabyNova, Babyono, BEABA, BEBECONFORT, BIBI, Bibs (Tolico), Born Free (Bliss), Camera, Cangaroо, Canpols, CARREFOUR, CHICCO, Difrax BV, DISNEY, DODIE, Dr. Brown´s, Etos, Fred, Goldi, GUMDROP TOMY, HEMA B.V., HEVEA, KINDERPLANET, Lorelli, Lovi, MAM, Mininor, Mothercare, Natursutten, Nip, NOVILAB AG, NUBY, NUK, Philips Avent, Poupy, Prenatal, SUAVINEX, Tigex, Tomee Tippee, TRUE, ULUBULU, Philip Avent.

TIL BAKA