Fara yfir á efnisvæði

Leysibendar sem leikföng

11.12.2017

Neytendastofa vill vekja athygli á frétt á heimasíðu Geislavarna ríkisins sem einnig má sjá hér að neðan. Við viljum benda fólki á að hafa samband við Neytendastofu ef það telur að verið sé að selja hér á landi vöru sem er hættuleg fólki. Ef varan heyrir ekki undir eftirlit Neytendastofu þá munum við koma ábendingunni á réttan stað.

Í sjónvarpsfréttum RUV í gær var sagt frá því að ungur drengur hefði orðið fyrir alvarlegum augnskaða eftir að hafa beint leysigeisla í hægra augað á sér, sjá http://ruv.is/frett/fraleitt-ad-svona-taeki-seu-aetlud-bornum

Vegna þessa vilja Geislavarnir ríkisins árétta að leysibendar eru ekki leikföng og skora á foreldra og aðra aðstandendur að koma í veg fyrir að börn leiki sér með þá. Leysibendar geta valdið alvarlegum augnskaða á örstund sé geislanum beint að auga eins og dæmin sanna.

Um leysibenda gilda alþjóðlegir staðlar og eru þeir flokkaðir eftir afli geislans sem þeir gefa frá sér. Leysibendar með afl undir 1 mW ( milliWatt ) eru í flokkum 1 og 2 og eiga ekki að geta valdið skaða á auga við eðlilega notkun. Leysibendar með afl meira en 1 mW eru í flokkum 3 og 4 og geta valdið skaða á auga. Þess vegna er notkun þeirra háð leyfi Geislavarna ríkisins. Þess aflmeiri sem leysibendirinn er því alvarlegri getur skaðinn orðið. Geislinn frá leysibendi í flokki 4 (afl meira en 500 mW ) er það aflmikill að hann getur valdið íkveikju og endurkast geislans getur valdið augnskaða.

Á leysibendum eiga að vera merkingar sem sýna flokkun þeirra. Því miður eru merkingar stundum rangar og því öruggast að börn leiki sér alls ekki með leysibenda. Varað er við því að slík tæki séu keypt af götusölum erlendis.

Um innflutning og notkun leysibenda gildir reglugerð nr. 1339/2015, sjá https://www.reglugerd.is/reglugerdir/eftir-raduneytum/velferdarraduneyti/nr/1339-2015

Frekari upplýsingar um leysibenda og leysa eru á heimasíðu Geislavarna, sjá
https://gr.is/leysar-og-leysibendar/

Eldri fréttir um leysibenda eru á heimasíðu Geislavarna, sjá
https://gr.is/?s=leysibendar

TIL BAKA