Fara yfir á efnisvæði

Ólögmætt vaxtaendurskoðunarákvæði

30.07.2018

Neytendastofa hefur tekið ákvörðun gagnvart Arion banka hf. vegna ákvæðis um vaxtaendurskoðun veðskuldabréfa Frjálsa Fjárfestingarbankans hf. sem framseld höfðu verið til Arion banka. Neytendastofa taldi að Arion banki hf. hafi brotið gegn þágildandi lögum um neytendalán með því að byggja vaxtaendurskoðun neytendaláns á samningsskilmálum sem tilgreindu ekki við hvaða aðstæður vextir breytist. Neytendastofa hefur nú bannað Arion banka notkun ákvæðisins um vaxtaendurskoðun.

Mikilvægi þess að tilgreint sé við hvaða aðstæður vextir breytast má berlega sjá í þessu máli þar sem kröfuhafaskipti verða á láninu. Má ætla að þau lán sem litið er til við vaxtaendurskoðun séu önnur eftir kröfuhafaskiptin og skiptir því verulegu máli fyrir neytanda að tilgreint sé í lánasamningi við hvaða aðstæður vextir breytast.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA