Fara yfir á efnisvæði

Hyundai innkallar IONIQ PHEV

29.08.2018

Lógó HyundaiNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Hyundai á Íslandi að innkalla þurfi 2 Hyundai IONIQ PHEV af  bifreiðar af árgerðinni 2015-2017. Ástæða innköllunar er að vökvakúplingar uppfylli ekki staðla og það gæti orðið til þess að vökvi komist inní kúplingsdælu sem gæti orsakað skammhlaup og þannig aukið hættuna á ofhitnun/eldsvoða.  Viðgerð felst í því að kúplingsdæla verður skoðuð og þeim skipt út ef þurfa þykir. Aðgerð er eigendum að kostnaðarlausu og tekur u.þ.b.1 klst.

Hringt verður í eigendur á næstu dögum.

TIL BAKA