Fara yfir á efnisvæði

Ertu með alvöru endurskinsmerki?

27.09.2018

Það er sérstaklega mikilvægt að vera áberandi og vel merktur þegar farið er að skyggja. Neytendastofa vill brýna fyrir neytendum að skoða allar merkingar á endurskinsmerkjum áður en þau eru notuð. Of algengt er fyrir að merki séu seld eða afhent sem endurskinsmerki en eru það í raun ekki. Neytendur geta ekki lagt mat á endurskinsmerki með því einu að horfa á þau. Þess vegna hvílir mikil skylda á framleiðendum, innflytjendum, dreifingaraðilum og söluaðilum endurskinsmerkjanna að sjá til þess að merkin séu í lagi og örugg.

Neytendastofa hvetur fólk að skoða vel upplýsingar sem gefnar eru á merkinu, umbúðum eða upplýsingablaði sem fylgir þeim. Það er mjög áríðandi að allar tilskildar merkingar og leiðbeiningar um notkun komi greinilega fram. Endurskinsmerki sem standast kröfur verða að vera CE-merkt og merkt með númerinu EN 13356 eða ÍST EN 13356. Slík merking táknar að framleiðandinn hafi látið prófa vöruna og fengið staðfest að hún sé í lagi. Viðurkennd endurskinsmerki sýna einstakling sem mætir bíl með lágum ljósum í 125 metra fjarlægð.

Vara sem uppfyllir ekki kröfur um endurskin veitir falskt öryggi og getur þar af leiðandi skapast lífshætta þar sem einstaklingurinn telur sig vera með endurskinsmerki sem ökumenn ættu að sjá.

TIL BAKA