Fara yfir á efnisvæði

Toyota innkallar 761 Aygo bifreiðar

29.11.2018

Lógó toyota

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Toyota á Íslandi um að innkalla þurfi Toyota Aygo bifreiðar af árgerðunum 2005 til 2014.  Um er að ræða 761 bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er sú að möguleiki er fyrir hendi að rúða við afturhlera getur losnað að hluta vegna ófullnægjandi límingar.

Við innköllun er rúðan athuguð og lagfærð ef þurfa þykir. Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA