Fara yfir á efnisvæði

BL innkallar Subaru

24.04.2019

Subaru vörumerkiNeytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf um að innkalla þurfi Subaru bifreiðar af árgerðunum 2011 til 2014.  Um er að ræða 189 bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er sú að loftpúðar bifreiðanna gætu verið gallaðir. Um er að ræða hluta af alþjóðlegri innköllun sem rekja má til loftpúðaframleiðandans Takata. Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa. 

TIL BAKA