Fara yfir á efnisvæði

BL ehf. innkallar Renault Traffic III

30.07.2019

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf  um að innkalla þurfi 25 Renault Traffic III bifreiðar af árgerð 2018. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að handbremsa virki ekki sem skildi   Viðgerð felst í að skipt verður um hamdbremsubarka í umræddum bílum. Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA