Fara yfir á efnisvæði

Bílaumboðið Askja innkallar Mercedes-Benz GLE

03.09.2019

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf  um að innkalla þurfi 10 Mercedes-Benz GLE bifreiðar af árgerð 2019. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að affallshosa fyrir loftkælingu sé ekki nægilega fest. Ef festingu er ábótavant og ekkert að gert, mun vatn leka frá kerfinu og inn í bifreiðina.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina símleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA