Fara yfir á efnisvæði

Toyota innkallar 185 Proace

04.09.2019

Lógó toyotaNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Toyota á Íslandi ehf  um að innkalla þurfi 185 Toyota Proace bifreiðar af árgerðum 2016 - 2019. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að öryggisbelti farþegamegin virki ekki sem skyldi við ákveðnar aðstæður. Viðgerð tekur um það bil 30 mínútur og felst í því að skipt verður um öryggisbeltissylgjuna.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA