Fara yfir á efnisvæði

Askja innkallar Mercedes Benz Sprinter bifreiðar

04.12.2019

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf  um að innkalla þurfi 25 Mersedes Benz Sprinter bifreiðar af ótilgreindum árgerð Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að boltar sem halda húddlæsingu séu ekki nægilega vel hertir. Viðgerð felst í yfirferð á herslu.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  símleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA