Fara yfir á efnisvæði

Hekla innkallar Skoda Superb

13.02.2020

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Heklu hf. um að innkalla þurfi 2 Skoda Superb bifreiðar af árgerð 2015. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að stjórntölva í loftpúðakerfi gæti bilað. Ef bilun er til staðar getur hún valdið því að loftpúðakerfi fái skilaboð um bilun og slökkvi á kerfinu. Ef það gerist mun aðvörunarljós í mælaborði kvikna.

Viðkomandi bifreiðareigandum hefur verið tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA