Fara yfir á efnisvæði

Tesla Motors innkallar Tesla Model X

04.03.2020

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Tesla Motors Iceland ehf  um að innkalla þurfi 3 Tesla Model X bifreiðar af árgerð 2014 til 2016. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að vökvastýri virki ekki sem skyldi.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina símleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA