Fara yfir á efnisvæði

Thule innkallar Thule Sleek barnakerrur

30.07.2020

Fréttamynd

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Thule AB vegna innköllunar á Thule Sleek barnakerrum með tegundarnúmerum 11000001 - 11000019. Barnakerrurnar sem verið er að innkalla voru framleiddar á tímabilinu maí 2018 til september 2019. Innan Íslands var viðkomandi vöru dreift af Nordic Games Ltd. Samkvæmt tilkynningunni kemur fram að það vantar tvær skrúfur í handfangið. Því getur það auðveldlega losnað, við það getur barnasætið dottið og barnið orðið fyrir meiðslum.

Thule mun hafa samband við neytendur sem hafa orðið fyrir áhrifum af gallanum í gegnum vefsíðu sína og með aðstoð dreifingaraðila.
Neytendastofa hvetur neytendur til að hætta notkun á barnakerrunni þangað til að úrbætur hafa verið gerðar.


TIL BAKA