Fara yfir á efnisvæði

Brimborg innkallar Ford Kuga PHEV bifreiðar

05.08.2020

Brimborg vörumerkiðNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Brimborg ehf. um að innkalla þurfi Ford Kuga PHEV bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er að skoða þarf tengi í tölvu fyrir hybrid rafhlöðu en tengið gæti orsakað of mikinn hita í rafhlöðu bílanna.

Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina símleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA