Fara yfir á efnisvæði

Fullyrðingar Dælunnar bannaðar

22.12.2020

Neytendastofa hefur bannað fullyrðingar sem notaðar voru í markaðsherferð Dælunnar um lægsta meðalverð íslenskra olíufélaga og besta mögulega eldsneytisverð hverju sinni þar sem stofnunin taldi þær ósannaðar.
Neytendastofa taldi framsetningu auglýsinganna og afdráttarlausar fullyrðingarnar til þess fallið að neytendur teldu Dæluna bjóða lægsta eldsneytisverð allra keppinauta. Í auglýsingunum kom ekki fram hvað átt væri við með meðalverð eða tilgreind hvaða olíufélög átt væri við. Að mati Neytendastofu væru fullyrðingarnar villandi fyrir neytendur þar sem Costco sé undanskilið samanburðinum en það er ekki tekið fram í auglýsingunni. Jafnframt taldi stofnunin fullyrðingu um besta mögulega eldsneytisverð hverju sinni einnig villandi þar sem hvergi sé skýring á því hvað átt sé við besta verðið sem Dælan getur boðið hverju sinni. Taldi Neytendastofa auglýsinguna villandi þar sem auðveldlega væri hægt að túlka fullyrðinguna þannig að Dælan væri ávallt með með lægsta mögulega verðið. Sú væri þó ekki raunin og því taldi Neytendastofa fullyrðingarnar villandi.

Við meðferð málsins taldi Neytendastofa Dæluna hafa fært sönnur á fullyrðingar um lægsta verð í Kópavogi og því ekki tilefni til aðgerða vegna þeirra.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér


TIL BAKA