Fara yfir á efnisvæði

BL Hyundai ehf. innkallar 49 Hyundai KONA EV bifreiðar

07.01.2021

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL Hyundai ehf um að innkalla þurfi 49 Hyundai KONA EV bifreiðar af árgerð 2018-2020. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að hugbúnaðarvilla valdi því að bremsupetali verður þungur. Viðgerð felst í hugbúnaðaruppfærslu.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis eða símleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA