Fara yfir á efnisvæði

Brimborg ehf innkallar 44 Ford Mondeo bifreiðar

18.02.2021

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Brimborg ehf  um að innkalla þurfi 44 Ford Mondeo bifreiðar af árgerð 2014-2016. Ástæða innköllunarinnar er Ford Motor Company hefur sent Brimborg upplýsingar um að gæðaeftirlit hafi leitt í ljós að nauðsynlegt er að skipta um bolta sem halda hjálparmótor. Umræddir boltar geta gefið sig vegna tæringar.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA