Fara yfir á efnisvæði

Flying Tiger Copenhagen innkallar tréleikfangabíla

18.02.2021

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Flying Tiger Copenhagen um að innkalla þurfi tréleikfangabíla.
Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að tengipinni getur losnað og valdið köfnunarhættu. Ekkert slys hefur átt sér stað vegna þessarar vöru og innköllun gerð í forvarnarskyni.

Eigendum umræddrar vöru er bent á að taka vöruna strax úr umferð og geyma þar sem börn ná ekki til. Vörunni er hægt að skila í öllum verslunum Flying Tiger Copenhagen og fá endurgreiðslu.

tengill á heimasíðu Flying Tiger Copenhagen: https://is.flyingtiger.com/is-IS/product-information-recall

TIL BAKA