Fara yfir á efnisvæði

BL innkallar Nissan

10.03.2021

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf  um að innkalla þurfi 4 Nissan eNV-200 bifreiðar af árgerð 2019. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að loftpúði virki ekki sem skyldi. Viðgerð felst í því að skipt verður um loftpúða. Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  símleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA