Fara yfir á efnisvæði

BL ehf. innkallar 1157 Hyundai Tucscon bifreiðar

18.03.2021

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf  um að innkalla þurfi 1157 Hyundai Tucscon bifreiðar af árgerð 2015-2020. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að hætta er á skammhlaupi í HECU tölvu sem getur leitt til íkveikju og þar af leiðandi eldi í vélarrými bifreiðarinnar.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.


Teitur Atlason

TIL BAKA