Fara yfir á efnisvæði

BL ehf innkallar 81 Renault Master lll bifreiðar

20.04.2021

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf  um að innkalla þurfi 81 Renault Master III bifreiðar af árgerð 2018 - 2019. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að skipta þurfi um eldsneytislögn.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis og símleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA