Fara yfir á efnisvæði

Fullyrðingar í auglýsingum Landsbjargar rangar

17.05.2021

Neytendastofa hefur lokið ákvörðun um auglýsingar Landsbjargar um umhverfisvænni flugelda. Skoðun Neytendastofu tók annars vegar til auglýsinga Landsbjargar þar sem væru ýmsar fullyrðingum um umhverfisvænni flugenda undir yfirskriftinni „Öndum léttar – Umhverfisvænni flugeldar“ og hins vegar til myndmerkis með skopgerðum flugeldi á grænum bakgrunni með laufblaði þar sem stóð „Umhverfisvænni flugeldar“.

Í skýringum Landsbjargar var farið yfir þær ráðstafanir sem gerðar hafa verið í tengslum við flugeldasölu til þess að draga úr neikvæðum áhrifum á umhverfið. Gerð væri grein fyrir þessu aðgerðum í umræddum auglýsingum.

Í niðurstöðum ákvörðunarinnar fjallar Neytendastofa um það að þær aðgerðir sem gripið hafi verið til við sölu flugeldanna, þ.e. að sorpgámar fyrir flugeldaúrgang séu staðsettir við helstu sölustaði, að pappi og plast sem fellur til við flugeldasölu sé flokkaður og endurunninn sem og samstarf félagsins við Skógræktarfélag Íslands varðandi gróðursetningu á trjám, leiði ekki til þess að flugeldarnir sem slíkir séu umhverfisvænni en áður. Önnur atriði séu til komin vegna lagabreytinga. Þá væri framsetning fullyrðinganna þannig að ekki væri ljóst hvort flugeldar Landsbjarnar séu umhverfisvænni en gengur og gerist á markaði eða hvort þeir séu umhverfisvænni en árin á undan.

Neytendastofa taldi fullyrðinguna því ósannaða, veita rangar upplýsingar um helstu einkenni vörunnar og til þess fallna að hafa áhrif á fjárhagslega hagsmuni neytenda. Birting fullyrðingarinnar er því bönnuð.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA