Fara yfir á efnisvæði

Askja ehf innkallar 22 Mercedes-Benz C-Class og GLC bifreiðar

26.05.2021

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf  um að innkalla þurfi 22 Mercedes-Benz C-class og GLE bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að kælimiðilslögn sé ekki rétt staðsett. Innköllun felst í skoðun og möglega lagfæringu á staðsetningu umræddarar kælimiðilslagnar
Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA