Fara yfir á efnisvæði

Askja innkallar Mercedes-Benz GLE/GLS

10.06.2021

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf  um að innkalla þurfi 20 Mercedes-Benz GLE/GLS bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að affallsrör fyrir loftkælinguna sé ekki rétt frágengið. Staðfesta þarf frágang til að koma í veg fyrir tjón.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  símleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA