Fara yfir á efnisvæði

Brimborg innkallar 137 Volvo

10.06.2021

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Brimborg ehf  um að innkalla þurfi 137 Volvo S60, V60, S90, V90, V90CC, S90L. XC60 og XC90 bifreiðar af ólíkum árgerðum. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að öryggi fyrir eldsneytisdælu getur sprungið.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA