Fara yfir á efnisvæði

Duldar auglýsingar á samfélagsmiðlum

15.06.2021

Neytendastofu bárust ábendingar vegna færslna á Instagram síðu einstaklings þar sem fjallað var um margvíslegar vörur og þjónustu fyrirtækja án þess að það kæmi fram að um auglýsingu væri að ræða. Neytendastofa óskaði eftir upplýsingum um hvort endurgjald hefði komið fyrir umfjöllunina, hvernig viðskiptasambandi hans og fyrirtækjanna væri háttað og hvort þriðji aðili hefði annast milligöngu vegna umfjöllunarinnar. Við meðferð málsins kom fram að einstaklingurinn hafði í einhverjum tilvikum þegið vörur að gjöf frá fyrirtækjunum eða fengið afslátt sem telst vera endurgjald.

Neytendastofa taldi að ekki hefði komið fram með nægilega skýrum hætti að umfjöllunin hefði verið auglýsing eða að hún væri gerð í viðskiptalegum tilgangi, en slíkt verður að koma skýrt fram. Stofnunin bannaði því einstaklingnum að nota duldar auglýsingar á samfélagsmiðlum.

Ákvörðunina má nálgast hér.

Leiðbeiningar Neytendastofu um auðþekkjanlegar auglýsingar má nálgast hér.

TIL BAKA