Fara yfir á efnisvæði

Pústþjónusta BJB ehf innkallar dekk

22.06.2021

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Pústþjónustu BJB ehf  sem er umboðsaðili Continental dekkja um að innkalla þurfi 16 bíldekk sem seld hafa verið hérlendis.  Um er að ræða innköllun sem er í gildi á öllu EU og EES svæðinu.  Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að dekkið haldi ekki lofti og geti þar af leiðandi skapað hættu í akstri.  

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  símleiðis

TIL BAKA