Fara yfir á efnisvæði

Hekla hf innkallar 1820 bifreiðar

03.08.2021

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Heklu hf  um að innkalla þurfi 1820 Mitsubishi ASX (2018-2020), Eclipse Cross (2018-2021) og Outlander (2017-2020). Ástæða innköllunarinnar er að vegna forritunarvillu er mögulegt að ákeyrsluviðvörunarkerfi að framan, greini ranglega myndir frá myndavél bílsins og virkji sálfvirka helmlun og viðvörunarskilaboð.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA