Fara yfir á efnisvæði

Sektir vegna verðmerkinga

10.09.2021

Neytendastofa hefur sektað Gulla Arnar bakarí, Kjötbúðina, Kjötkompaní og Sælkerabúðina fyrir að fara ekki að fyrirmælum stofnunarinnar um verðmerkingar.

Í verðmerkingareftirliti er skoðað hvort söluvörur eru verðmerktar, hvar sem þær eru sýnilegar eða aðgengilegar neytendum. Neytendastofu gerði athugasemdir við verðmerkingar í verslununum þar sem nokkuð var um óverðmerktar vörur og hvatti til úrbóta. Þegar starfsmenn Neytendastofu komu í annað sinn voru enn gerðar athugasemdir við verðmerkingar og því hefur stofnunin nú sektað fyrirtækin.

Ákvarðanirnar má finna hér.

TIL BAKA