Fara yfir á efnisvæði

Bann við sölu á kertum hjá Samkaup

29.09.2021

Fréttamynd

Neytendastofa hefur bannað sölu og afhendingu á gylltum og rauðgylltum kertum frá framleiðandanum Premier Decorations Ltd. sem seld voru í verslunum Samkaup. Á meðfylgjandi myndum má sjá þau kerti sem um ræðir.

Neytendastofu barst ábending um óeðlilegan bruna í kertunum af því að húðun kertanna væri svo þykk að þau brenni óeðlilega. Við bruna kertanna hafi orðið neistaflug og eldstrókur myndast auk þess sem kertavax spýttist út frá einhverjum kertanna. Því óskaði Neytendastofa eftir upplýsingum frá Samkaupum um hvort kertin uppfylltu viðeigandi kröfur um öryggi þeirra. Stofnuninni bárust ekki fullnægjandi gögn.

Í ljósi þess var það niðurstaða stofnunarinnar að Samkaup hafi ekki tekist að sýna fram á öryggi kertanna og varan því ekki örugg. Taldi stofnunin þar af leiðandi nauðsynlegt að banna alla sölu og afhendingu kertanna.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA