Fara yfir á efnisvæði

Viðskiptahættir Sparibíls

25.10.2021

Neytendastofu barst ábending yfir auglýsingum Bonum ehf., sem rekur Sparibíl um að í auglýsingum félagsins kæmu fram rangar fullyrðingar um þá bíla sem félagið selji. Málið varðaði annars vegar almennu fullyrðinguna „Sömu bílar bara miklu ódýrari“ og hins vegar fullyrðinguna um 800.000 kr. lægra verð á Mitsubishi Outlander PHEV hjá Sparibíl heldur en listaverð og að um villandi samanburð væri að ræða við samkeppnisaðila. Að auki kom til skoðunar fullyrðing Sparibíls um fimm ára ábyrgð á ökutækjunum.

Sparibíll hafnaði því að fullyrðingar væru villandi eða andstæðar góðum viðskiptaháttum. Til staðfestingar fullyrðingunum var lagður fram verðlisti umboðsaðila bifreiðanna. Þá var tekið fram að allir Mitsubishi Outlander bílar séu í 5 ára verksmiðjuábyrgð og fram komi í þjónustubók bílsins að bíllinn sé í 5 ára ábyrgð fyrstu 24 mánuðina án kílómetratakmarkana og næstu 36 mánuði upp í 100.000 km. Þá sé 8 ára ábyrgð á batteríinu.

Neytendastofa taldi að þótt auglýstur bíll Sparibíls gæti talist staðgönguvara bíls sömu tegundar frá umboðsaðila væri samanburðurinn villandi þar sem ekki hafi verið lögð fram gögn sem sýndu með óyggjandi hætti að auglýstur bíll Sparibíls væri búinn sömu aukahlutum eða aukabúnaði og samanburðarbíll. Í ákvörðuninni er um það fjallað að gera verði grein fyrir því með skýrum hætti ef bílarnir væru gæddir ólíkum aukabúnaði. Þá taldi stofnunin ekki hafa verið sýnt fram á að samanburðarverð hafi verið viðeigandi á þeim tíma sem auglýsingarnar voru birtar.
Hvað varðaði auglýsta 5 ára ábyrgð Sparibíls þá taldi stofnunin í ljósi þess að hún var ekki fortakslaus að upplýsingar um almenn skilyrði ábyrgðarinnar skiptu miklu máli fyrir neytendur og það gæti raskað verulega fjárhagslegri hegðun neytenda að þær upplýsingar væru ekki aðgengilegar í auglýsingunum samhliða tilvísun til fimm ára ábyrgðar. Því væri ótvírætt orðalag Sparibíls um 5 ára ábyrgð villandi.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA