Fara yfir á efnisvæði

Ákvörðun um kynningu endurnýjunar aðildar hjá Costco

31.12.2021

Neytendastofu barst ábending um að þegar viðskiptavinur endurnýi aðild sína hjá Costco þá miði upphaf nýrrar aðild við þann tími sem fyrri aðild rann út en ekki daginn sem aðild er endurnýjuð. Í öllu kynningarefni komi fram að aðild séu 12 mánuðir en samkvæmt þessu geti endurnýjuð aðild verið styttri.

Í skilmálum Costco um endurnýjun aðildar kemur fram að endurnýjun sé fyrir 12 mánaða tímabil miðað við upphaflega skráningu, aðild sem sé endurnýjuð innan tveggja mánaða frá því að núverandi aðild rann út, verði endurnýjuð í 12 mánuði frá því að gildistíminn rann út en að aðild sem sé endurnýjuð tveimur mánuðum eða seinna, eftir að hún rennur út, verði framlengd um 12 mánuði frá dagsetningu endurnýjunar.

Taldi Neytendastofa kynningu félagsins á endurnýjun aðildar villandi, ósanngjarna í garð neytenda og til þess fallna að að hafa veruleg áhrif á fjárhagslega hagsmuni neytenda. Hinn almenni neytandi muni ekki gera sér grein fyrir umræddum fyrirvörum á gildistíma enda alla jafna talað um árlegt aðildargjald og 12 mánaða gildistíma og ekki gerð grein fyrir þessum skilmála í kynningarefni aðildarinnar.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér

TIL BAKA