Fara yfir á efnisvæði

Ilva sektað fyrir villandi auglýsingar um afslætti

11.12.2025

Neytendastofa hefur tekið ákvörðun gagnvart ILVA ehf. vegna viðskiptahátta og markaðssetningu félagsins er viðkom tíðum afsláttarkjörum og auglýsingum um afslætti.

Á því tímabili sem úttekt stofnunarinnar tók til, frá 1. ágúst 2024 til 6. janúar 2025, sendi félagið að lágmarki 46 markpósta þar sem auglýstur var 20-25% afsláttur af öllum vörum að frátöldum sérpöntunum og vörum á föstu lágu verði. Í desember 2024 auglýsti verslunin að lágmarki 12 sinnum 20-25% afslátt af öllum vörum, þ.e. 12 daga voru sendir markpóstar með umræddum auglýsingum og/eða auglýsingar birtar í Morgunblaðinu og var þar frátalið auglýsingar sem birtar voru á vefmiðlum.

Þá auglýsti ILVA afsláttarkjör sem einvörðungu áttu að gilda í ákveðinn tíma en hafi svo annað hvort framlengt afsláttarkjörin í tiltekinn viðbótartíma eða auglýst strax aftur önnur afsláttarkjör sem tóku til sömu vara (iðulega auglýst 20-25% afsláttur af öllum vörum að sérpöntunum og vörum á föstu lágu verði frátöldum).

Að lokum auglýsti ILVA sófadaga en á vefsíðu félagsins kom fram „20-40% afsláttur af öllum sófum“. Þegar sölusíða félagsins var skoðuð kom hins vegar í ljós að ekki voru í boði afsláttarkjör af fjölda sófa sem til sölu voru hjá félaginu.

Í svörum félagsins kom fram að á úttektartímabili Neytendastofu hafi félagið staðið í flutningum á vöruhúsi sínu og hafi vöruflutningar á milli vöruhúsa verið umfangsmeiri en áætlað var sem hafi leitt til þess að fyrirtækið hafi ekki getað afgreitt stóran hluta af vöruvali sínu til viðskiptavina í ágúst og fram á haust og það útskýri hin tíðu tilboð. Félagið telji að um raunverulega verðlækkun hafi verið að ræða og því sé fyllilega heimilt að framlengja tilboðsdaga til hagsbóta fyrir neytendur.

Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að þegar afsláttardagar eru eins umfangsmiklir og algengir líkt og í fyrirliggjandi máli, sé ekki um raunverulega verðlækkun að ræða enda felist í verðlækkun að seljandi bjóði vöru á lægra verði en hann selji sams konar vöru venjulega á. Neytendastofa komst einnig að þeirri niðurstöðu að með því að auglýsa ítrekað lokadag tilboðs en framlengja svo tilboð eða auglýsa nýja tilboðsdaga eða afsláttarkjör hafi félagið brotið gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu ásamt reglugerð um viðskiptahætti sem teljast undir öllum kringumstæðum óréttmætir. Að lokum komst Neytendastofa að þeirri niðurstöðu að með því að auglýsa afslátt af öllum sófum þegar fjöldi sófa voru ekki á afslætti hafi félagið brotið gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu ásamt reglum um útsölur og aðra sölu þar sem selt er á lækkuðu verði.

Bannaði stofnunin ILVA að viðhafa umrædda viðskiptahætti. Taldi stofnunin einnig tilefni til að beita stjórnvaldssekt í málinu og nam sektarfjárhæðin 1.000.000 kr.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér

TIL BAKA