Sekt vegna verðmerkinga
24.02.2026
Neytendastofa gerði skoðun á ástandi verðmerkinga hjá 28 verslunum og þjónustuveitendum í Smára- og Lindarhverfi í Kópavogi. Í verðmerkingareftirliti er skoðað hvort söluvörur eru verðmerktar, hvar sem þær eru sýnilegar eða aðgengilegar neytendum. Einnig er skoðað hvort að verðskrá yfir framboðna þjónustu sé sýnileg.
Í verðmerkingareftirliti Neytendastofu gerðu starfsmenn stofnunarinnar athugasemdir við verðmerkingar í 13 verslunum þar sem ástand verðmerkinga var ábótavant og hvatti stofnunin til úrbóta. Skoðuninni var að lokum fylgt eftir með annarri heimsókn og nú hefur stofnunin sektað tvö fyrirtæki sem höfðu ekki gert fullnægjandi úrbætur á verðmerkingum.
Sektirnar má lesa í heild sinni hér