Ný markaðssetningarlög
Alþingi hefur samþykkt markaðssetningarlög sem fela í sér heildarendurskoðun á lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, lögum um Neytendastofu og lögum um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd.
Í skýringu með lögunum segir m.a. um þau að markmið laganna sé að efla virka samkeppni í viðskiptum og tryggja gott neytendaumhverfi. Þá segir að lögin hafi að geyma almenn ákvæði um viðskiptahætti atvinnurekenda og neytendavernd sem geta eftir atvikum komið til fyllingar eða viðbótar við ákvæði ýmissa annarra laga. Þannig séu lögin mikilvæg rammalöggjöf fyrir atvinnurekendur og neytendur á Íslandi.
Lagabreytingin leiðir til þess að þær reglur sem Neytendastofa hefur gefið út á grundvelli laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu falla úr gildi og mun atvinnuvegaráðuneyti þess í stað setja reglugerð til fyllingar ákvæðum laganna þar sem þörf er á. Reglurnar halda þó gildi sínu tímabundið eða þar til ráðuneytið hefur gefið út viðkomandi reglugerðir.
Neytendastofa vinnur nú að uppfærslu þeirra leiðbeininga og upplýsinga sem birtar eru á vefsíðu stofnunarinnar í tilefni nýrra laga.