Fara yfir á efnisvæði

Kynning og markaðssetning Executive MBA náms við Akademias

04.05.2026

Neytendastofa hefur tekið ákvörðun gagnvart Akademias ehf., rekstraraðila Akademias. Ákvörðunin snýr að notkun heitisins „Executive MBA“ í markaðs- og kynningarefni fyrirtækisins.

Akademias hafnaði því að að kynningarefni félagsins á Akademias Executive MBA geti talist villandi og vísaði til þess að ekki væri um lögverndað heiti að ræða ásamt því að hvergi komi fram í efni félagsins að Akademias sé háskóli. Ennfremur benti Akademias á að ákvörðun um að fjárfesta í löngu námi sé ekki tekin í skyndi og því um upplýsta kaupákvörðun neytenda að ræða.

Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að framsetning kynningarefnis Akademias á Akademias Executive MBA og notkun félagsins á heitinu „Executive MBA“ á námi sínu sé villandi gagnvart neytendum. Notkun þess kunni að gefa neytendum ranglega til kynna að um háskólanám sé að ræða sem leiði til háskólaprófs en Akademias er ekki háskóli í skilningi laga nr. 63/2006.

Neytendastofa bannaði Akademias ehf. að nota heitisins „Executive MBA“, í markaðs- og kynningarefni fyrirtækisins svo villandi sé fyrir neytendur. Upplýsingar um námleiðina „Akademias Executive MBA“ þurfi að vera réttar, viðeigandi og kveða með skýrum hætti á um að ekki sé um háskólanám að ræða sem leiði til háskólaprófs í skilningi laga nr. 63/2006, hvar sem þær birtast neytendum.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér

TIL BAKA