Fara yfir á efnisvæði

Ákvarðanir Neytendastofu staðfestar að hluta

06.05.2026

Neytendastofa lauk fyrstu ákvörðunum vegna upplýsingaskyldu við gjaldskyld bílastæði síðasta sumar. Þar á meðal voru ákvarðanir gagnvart Isavia Innanlandsflugvöllum ehf. og Isavia ohf. sem kærðu ákvarðanirnar til áfrýjunarnefndar neytendamála.

Áfrýjunarnefnd hefur nú úrskurðað í málunum og eru ákvarðanir Neytendastofu staðfestar að hluta til.

Í báðum úrskurðum staðfesti áfrýjunarnefnd þann hluta ákvarðananna sem snýr að því að ekki væru veittar nægilega skýrar upplýsingar um þjónustugjald sem bætist við þegar krafa er send í heimabanka og fyrir að gefa til kynna að til staðar sé sjálfvirkt greiðslukerfi án þess að taka fram að virkja þurfi það sérstaklega.

Sá hluti ákvarðananna sem snýr að tilgreiningu gjalds fyrir að nota stafrænar greiðslulausnir var hins vegar felld úr gildi og leit áfrýjunarnefndin í því samhengi til þess að greiðsluþjónustuveitandi væri sjálfsætt fyrirtæki og með því að greiða fyrir þjónustu Isavia með appi væru neytendur í raun að kaupa þjónustu af tveimur óskildum félögum.

Þá felldi áfrýjunarnefndin úr gildi þann hluta ákvörðunar Isavia ohf. sem snéri að svokallaðri brottfararrennu á Keflavíkurflugvelli.

Voru stjórnvaldssektir lækkaðar lítillega af þessu tilefni.

Úrskurðina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA