Fara yfir á efnisvæði

Lukkuhjól Byko

29.06.2026

Neytendastofa hefur tekið ákvörðun gagnvart Byko vegna framsetningar lukkuhjóls Byko og upplýsingagjafar.

Samkvæmt lukkuhjólinu gátu þátttakendur lent á átta reitum og af þeim voru þrír reitir með engum vinningi en fimm reitir með vinningi. Hver þátttakandi gat tekið þátt einu sinni og dag og annað hvort hlotið vinning eða ekki. Engir vinningar voru þó í boði við snúning hjólsins heldur voru dregnir út nokkrir vinningshafa af handahófi meðan leikurinn var í gangi.

Neytendastofa taldi framsetning lukkuhjóls Byko hafi verið villandi gagnvart neytendum. Jafnframt er það álit Neytendastofu að skortur á upplýsingum um virkni lukkuhjólsins og tilhögun útdrátta vinninga hafi verið villandi og ósanngjarnt gagnvart neytendum.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.


TIL BAKA