Fara yfir á efnisvæði

Uppfærður samstarfssamningur Fjölmiðlanefndar og Neytendastofu um eftirlit með viðskiptaboðum

07.10.2026

Neytendastofa og Fjölmiðlanefnda hafa á liðnum árum kappkostað að efla samskipti og samstarf stofnananna , með það að markmiði að tryggja skilvirkt eftirlit með viðskiptaboðum á sama tíma og örar breytingar hafa orðið á auglýsingamarkaði og umhverfi fjölmiðla. Á þeim sviðum þar sem eftirlitshlutverk Fjölmiðlanefndar og Neytendastofu hefur skarast hefur verið unnið eftir ákveðinni verkaskiptingu sem leiða má af lögum.

Nýlega var undirritaður uppfærður samstarfssamningur Fjölmiðlanefndar og Neytendastofu um eftirlit með viðskiptaboðum til samræmis við þær lagabreytingar sem orðið hafa frá fyrri samningi sem undirritaður var árið 2021. Er samningnum ætlað að skýra starfssvið og hlutverk beggja stofnana, auk þess að kveða formlega á um verkaskiptingu í því skyni að tryggja skilvirkt eftirlit með framsetningu og innihaldi viðskiptaboða.

Uppfærðan samning má nálgast hér: Samstarfssamningur Fjölmiðlanefndar og Neytendastofu um eftirlit með viðskiptaboðum

TIL BAKA