Fara yfir á efnisvæði

Ákvörðun Neytendastofu nr. 3/2009

23.02.2009

Neytendastofa hefur tekið þá ákvörðun að banna Eggerti Kristjánssyni hf. sem rekur Íslenskt Meðlæti hf. notkun umbúða utan um grænmeti. Að mati Neytendastofu er gefið í skyn á umbúðunum að uppruni grænmetisins sé íslenskur sem er ekki rétt. Með notkun umbúðanna hafi Eggert Kristjánsson hf. brotið gegn ákvæðum 5. gr., 2. mgr. 9. gr. og 14. gr. laga nr. 57/2005 um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér

TIL BAKA