Fara yfir á efnisvæði

Ástand verðmerkinga á Akranesi og í Borgarnesi

15.09.2008

Farið var í sex matvöruverslanir á svæðinu. Valdar voru 25 vörur af handahófi í hverri verslun, kannað hvort þær væru verðmerktar og hvort verðmerking á hillu væri í samræmi við verð í kassa. Engin matvöruverslun var með allt rétt merkt. Alls voru skoðaðar 150 vörur og voru verðmerkingar af 11% þeirra í ólagi,sjá nánar hér. 

Farið var í þrjú bakarí og reyndust verðmerkingar þar mismunandi. Kannaðar voru merkingar í kæli annars vegar og borði hins vegar. Í Harðarbakarí voru allar verðmerkingar í góðu lagi en önnur bakarí á svæðinu þurfa að bæta verðmerkingar.

Verðmerkingar voru kannaðar í 20 sérvöruverslanir bæði inni í verslunum og í sýningargluggum. Ástand verðmerkinga í gluggum verslana var allt frá því að vera óverðmerkt, til þess að allar vörur í glugga voru merktar. Inni í verslunum var ástandið í flestum tilfellum viðunandi, en aðeins Borgarsport í Borgarnesi var með allt rétt verðmerkt.

 

Aðilum sem Neytendastofa telur ástæðu til að gera athugasemdir við vegna ástand verðmerkinga verður sent bréf frá stofnuninni og gefinn kostur á að koma verðmerkingum í viðunandi horf. Könnuninni verður fylgt eftir og ef þurfa þykir teknar ákvarðanir um hugsanleg viðurlög vegna slæms ástands verðmerkinga.

Neytendastofa hyggst halda verðmerkingareftirliti sínu áfram og kanna verðmerkingar á öðrum svæðum á landinu.

Ábendingum vegna rangra eða ófullnægjandi verðmerkinga má koma til neytendastofa í gegnum rafræna Neytendastofu á vefslóðinni rafraen.neytendastofa.is.

TIL BAKA