Fara yfir á efnisvæði

Suzuki innkallar bifreiðar af gerðinni Alto GF

14.05.2010

Fréttamynd

Neytendastofu hefur borist tilkynning um innköllun á Suzuki bílum af gerðinni Alto, týpu GF vegna hugsanlegs galla í raflögn. Einungis er um að ræða bíla framleidda á árinu 2009. Suzuki umboðið mun hafa samband við hlutaðeigandi bíleigendur þegar varahlutir hafa borist til landsins.

Ekki er vitað um slys í Evrópu af völdum þessara bíla. 

TIL BAKA