Fara yfir á efnisvæði

Ástand verðmerkinga á hársnyrtistofum á höfuðborgarsvæðinu

16.02.2009

Neytendastofa hefur gert könnun á ástandi verðmerkinga á hársnyrtistofum á höfuðborgarsvæðinu. Farið var á 128 stofur og kannað hvort verðlisti yfir helstu þjónustuliði væri til staðar og hvort sérvara væri merkt, sbr. reglur nr. 725/2008 um verðmerkingar og aðrar verðupplýsingar.

Aðeins voru 63 stofur, eða 49%, sem höfðu allar verðmerkingar sínar í lagi. Á þeim hársnyrtistofum var sérvara merkt með verði og viðskiptavinir höfðu greiðan aðgang að verðskrá yfir þá þjónustu sem hársnyrtistofan býður upp, það er gátu séð hvað barnaklipping kostar eða hvað kostar að setja lit í sítt eða stutt hár áður en þjónustan fór fram

Hjá 44 hársnyrtistofum var verðskrá ekki sýnileg og á fimm þeirra var engin verðskrá til staðar á stofunni. Það eru Hársnyrtistofan Amadeus, Rakarastofa Jóns Þórarinssonar, Hárgreiðslustofan Aflagranda, Greifinn og Hárgreiðslustofan Zoo.is. Það var því í 34% tilvika sem vantaði upplýsingar um verð á þeirri þjónustu sem í boði er fyrir neytendur.

Af hársnyrtistofnunum 128 eru 123 með ýmsar sérvörur til sölu. 21 stofa var með allar sérvörur óverðmerktar, á fimm stofum var ástand verðmerkinga ábótavant en á 97 stofum voru merkingarnar í lagi. Því voru það 27% af hársnyrtistofum sem voru ekki með verðmerkingar á sérvöru í lagi og þar af 17% með allt ómerkt.

Aðilum sem Neytendastofa telur ástæðu til að gera athugasemdir við vegna ástands verðmerkinga verður sent bréf frá stofnuninni og gefinn kostur á að koma verðmerkingum í viðunandi horf. Könnuninni verður fylgt eftir og ef þurfa þykir teknar ákvarðanir um viðurlög vegna slæms ástands verðmerkinga.

Þessi könnun var gerð eftir að Neytendastofa fékk ábendingu í gegnum rafræna Neytendastofu. Viljum við því minna á að ábendingum vegna rangra eða ófullnægjandi verðmerkinga má koma til Neytendastofu í gegnum rafræna Neytendastofu á vefslóðinni rafraen.neytendastofa.is.

TIL BAKA