Fara yfir á efnisvæði

Þyngdarkönnun á ostum

12.11.2012

Neytendastofa gerði könnun á þyngd forpakkaðra osta í verslunum. Skoðaðar voru tvær vörutegundir, 100 gramma Bóndabrie sem framleiddur er af Mjólkursamsölunni hf. og 130 gramma Glaðningi sem framleiddur er af Mjólkurbúinu ehf. Könnunin var gerð í kjölfar ábendinga neytenda sem bentu til þess að á markaði væru of léttir ostar miðað við uppgefna þyngd á pakkningu.

Við mælingar kom í ljós að Bóndabrie frá Mjólkursamsölunni hf. uppfyllti kröfur um þyngd.

Niðurstöður mælinga á sýnum frá Mjólkurbúinu ehf. voru að 35% af sýnum af Glaðningi reyndust vera undir leyfilegu fráviki frá þyngd sem tilgreind er á umbúðum. Léttasta sýnið reyndist aðeins 83 grömm í stað 130 g eða 35% undir þyngd. Einstaka sýni voru einnig yfir meðalþyngd þannig var þyngsta sýnið 58% yfir tilgreindri þyngd.

Athygli vekur að mismunur á hæstu og lægstu frávikum er mikill á ostinum frá Mjólkurbúinu ehf en þess má geta að leyfilegt er að yfirpakka þannig að þyngd stakra pakkninga sé meiri en tilgreint er á pakkningu.

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Mjólkurbúinu um að mistök hafi orðið að hálfu fyrirtækisins að undirvigtar ostar af ostinum Glaðning hafi verið afgreiddir verslanir í vikum 39 og 40.  Verið sé að innkalla allar vörur sem stóðust ekki vigt. Í tilkynningunni kemur einnig fram að þeir neytendur sem lentu í því óláni að kaupa vöru sem ekki náði vigt að hafa samband við fyrirtækið þar sem þeirra hlutur verður leiðréttur og bættur.

Ábyrgð á þyngd vöru er hjá framleiðendum en þeim ber að tryggja með löggiltum vogum að nettóþyngd sé í samræmi við merkingar á umbúðum. Neytendastofa hvetur framleiðendur til að virða gildandi reglur um magntilgreiningu á umbúðum og tryggja að magn vöru sem afhent er sé ávallt í samræmi við þyngdarmerkingar á umbúðunum.

Neytendastofa telur að athuganir hennar að undanförnu á forpökkuðum vörum sýni að mikilvægt sé að auka aðhald að markaðnum. Stofnunin mun halda áfram að taka við ábendingum og gera úrtaksskoðanir á ýmsum sviðum vöruviðskipta.

 

TIL BAKA